Um mig
Ég heiti réttu nafni Jonathan Gerlach Pedersen en í daglegu máli er ég þekktur sem Jonni eða Jonathan Gerlach. Ég er fæddur í Kaupmannahöfn árið sem Elvis dó (1977) þann 9. maí. Ég flutti ásamt móður minni Helgu Ólafsdóttir til Íslands þegar ég var við 4 ára aldur. Við fluttum í Flúðaselið í Breiðholtinu og bjuggum þar í 2 ár áður en við fluttum okkur í Tungusel 8 þar sem ég byrjaði í Ölduselsskóla og kláraði gagnfræðiskóla þar. Næst lá leiðin í Fjölbrautaskólann í Breiðholti þar sem ég stundaði nám við Myndlistasvið skólans og útskrifaðis þar árið 1997. Við tóku 2 ár af vinnu áður en ég hélt áleiðis til Tempe í Arizona og lærði þar grafíska hönnun við Al Collins Graphic Design School (nú Collins College). Ég bjó í Bandaríkjunum í tæplega 2 ár áður en ég flutti heim og hjálpaði félögum mínum að setja á laggirnar nýtt fyrirtæki sem ennþá er í fullri keyrslu, idega hugbúnað. Þar starfaði ég í 8 ár áður en ég flutti til Kaupmannahafnar með konu (Erla Sylvía) og barni (Guðjón Ingi). Eftir ár í Kaupmannahöfn sagði ég upp hjá idega og stofnaði mitt eigið fyrirtæki sem heitir Skapalón hönnunarhús. Ég hanna vefi og sinni almennri grafískri hönnun frá degi til dags. Það er gefandi starf og fæ ég tækifæri til að vinna með fjölmennum og skemmtilegum hóp fólks frá allskonar fyrirtækjum á Íslandi. Í dag er ég fluttur heim til Íslands aftur og bý í Salarhverfinu í Kópavoginum og uni vel við mitt.
