Þetta er svo yndislegt og einlægt. Maður veit að þetta er ekki skrifað af tölvu eins og svo margir ruslpóstar í dag …
Hello Dear,
My name is Ester De Leon,The wife of Mr Federico de Leon Chair of Anakpawis Partylist Bulacan; Spokesperson, Bulacan Confederation of Operators and Drivers Association,who was assasinated in philippines on 26th October 2005. Before my late husband was killed,I inherited a total sum of $15,million dollars from my late husband, this money which i put in a metallic trunk box and deposited it in a security and finance company in abroad. This deposit was coded under a secret arrangement as a family treasure. This means that the security company does not know the content of this trunk box.
Since the death of my late husband,the philippines government has blocked my account and my late husbands account and also my late husband family has succeed in collecting from me all the properties of my late husband.trying to leave me with nothing. I am contacting you because I want you to help me in securing the money in the box for the future of my children.since my late husband family made it impossible for me to move out of the house and they have been monitoring me seriously since then.
I hope to trust you as you will not sit on this money when you claim it.i am willing to give you 15% of the total money after you have secured the box for your assistance to me.if you are willing to help me,email me back at my private box (esterleon2001@yahoo.com) .so that i will give you more details on this issue.
Thanks and i wait to hear from you urgently
Best regards
Mrs Ester De Leon
Á Iceweb ráðstefnunni í dag tók einn fyrirlesarinn þessa auglýsingu sem dæmi um auglýsingu sem stæði ögn út úr hópnum. Ég verð eiginlega að vera sammála honum því hvað hefur annars górilla trommandi við lag Phil Collins með Catbury’s súkkulaði að gera?
Ég lagði nú ekki í að vaka eftir niðurstöðunum úr kosningunum í nótt en vaknaði reglulega til að fylgjast með (já, ég á það til að vakna 4-5 sinnum á næturna allajafna). Vaknaði svo kl. 6 í morgun til að skoða vefmiðlana og mér til mikillar ánægju sá að Obama hafði tekið forsetakosningarnar í BNA með trompi, hann eiginlega rústaði þessu
Byrjaði svo vinnudaginn á að horfa á ávarpið hans síðan í gær þegar ljóst var að hann hafði unnið. Obama er virkilega góður ræðumaður og jafnvel nær því að vera predikari en ræðumaður en það er önnur saga.
Ég verð bara að segja að út frá hönnunarlegu sjónarmiði þá er Obama með alveg skothelda herferð í gangi.
Vefsetrið sem kosningaskrifstofa hans rekur er þrælvel gert og hefur fengið lof fyrir gott viðmót og aðgengi. Fyrir okkur iPhone plebbana er meira að segja búið að gera sér
iPhone forrit til að fylgast með gengi mála. Í dag fékk ég svo sent þetta ágæta “rapp” video (sjá að ofan) og finnst mér einkar vel að því staðið, þótt lagið sé kannski ekki að fara að vinna nein Grammy verðlaun þá er grafíkin eðal
Þetta er skemmtilegt. Polaroid myndastaðallinn er svo gott sem dauður þar sem varla er hægt að fá filmur í þetta lengur. Við náðum að vísu að redda nokkrum pökkum fyrir giftinguna okkar en það kostaði líka morðfjár! Með Poladroid forritinu er hægt að leika sér með myndirnar sínar og láta forritið um að framkalla þetta “stafrænt” með öllum þessum fallegu “effectum” sem nást með Polaroid myndatækninni.
Mikið er kósý að sitja hérna við borðið sitt í vinnunni með slökkt á öllu nema skrifborðslampanum og horfa út um gluggann á stóru snjókornin falla hægt og rólega til jarðar …
Er manni lúmskt farið að hlakka til jólanna kannski?