Ný vefsíða Keflavíkurflugvallar ohf.
Þá er ný vefsíða Keflavíkurflugvallar komin í loftið. Skapalónið mitt sá um að hanna vefinn fyrir þá núna í desember og var það DaCoda sem sá um að forrita í þetta skiptið (sorry Laddi minn :)).
Jólakveðja og vísa með
Við strákarnir í vinnunni eigum það til að kveðast á af og til og eru jólin þar engin undantekning. Þessi litli stúfur var mitt framlag í morgun og skal taka það réttilega fram að hann er heldur klúrinn
Jólin eru klárlega að koma
kannski ég opni vín.
Strap-on dildo ég var að vona
eða var það mamma þín?
Gleðileg bloggjól öllsömul og takk fyrir frábært bloggár!
Vá, þetta er yndislegt myndskeið. Að sjá þarna Herbert Guðmundsson með ljósu lokkana, Agnesi Bragadóttur með fallegu vöflurnar í hárinu, Ómar Ragnarsson (ennþá með smá hár þarna) og Sigmund Erni, öll sitjandi við sama borð að ræða um velgengni Hebba.
Hér er ein spurningin sem Agnes spyr Hebba:
Agnes: Ég hef ákveðnar fregnir af því að þú hafir ákveðið að spila stórt í lífshappdrættinu og þú hafir lagt allt þitt undir þegar solo-ferill þinn hófst með plötunni Dawn of the Human Revolution og þar sem topp lagið Can’t Walk Away var … Hvernig þorðiru að taka svona mikla áhættu?
Herbert: To be or not to be (vandræðaleg þögn).
Nú er gaman að skoða hvar þetta fólk er í dag … öll nánast á hverjum degi fyrir framan myndavélina nema elsku besti Herbert. Hann er örugglega sveittur í stúdíóinu að vinna að annari sólóplötu fyrir aleiguna.
Lesbó!
Það er ekki annað hægt en að elska svona “smávægileg” mistök hjá prent hönnuðum. Stundum þarf bara aðeins að stíga frá skjánum til að sjá heildar myndina. Þetta er mynd sem ég tók af Lesbók Morgunblaðiðsins einhverntíma síðasta sumar en var búinn að gleyma að ég átti. Alltaf gaman að post-a gömlum myndum.
.
Til allra Moggabloggara
Ég skellti upp úr þegar ég rakst á kreppuhornið í Fréttablaðinu í gær. Þar er blogghetjan sjálf Katrín Atladóttir spurð út í kreppuna og svar hennar var eins og togað úr eigin munni.
„Það er tvennt í stöðunni: að verða Moggabloggari eða líta á kreppuna sem tækifæri. Betra væri að fleiri veldu seinni leiðina.‟
Katrín fær plús í kladdann hjá mér fyrir þessi spakmæli ![]()
Whodunnit auglýsing
Svona er nú hægt að gera skemmtilegar auglýsingar. Þessi er sérstaklega skemmtileg fyrir þá sem þykjast taka vel eftir umhverfi sínu.
Ég er viss um að
Jack Bauer mundi negla öll atriðin í þessari auglýsingu
Hér er innblásturinn?
Peter Schiff hafði rétt fyrir sér
Það er hálf grátlegt að horfa á þessi viðtöl við forstjóra Euro Pacific, Peter Schiff og sjá hversu ótrúlega nálægt hann var sannleikanum í spám sínum. Klippurnar voru teknar upp á árunum 2006 til 2007 og er hann aldeilis ekki hræddur við að spá algjöru hruni á fasteigna og fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum, þvert á alla fjármálaspekúlanta sem umkringja hann í hverju viðtali.
Guðjón Ingi sagði …
Guðjón Ingi (4 ára) var að drasla til í herberginu sínu áðan á meðan ég var að vinna og ég spurði hann hvað í ósköpunum hann væri að gera og hann svaraði; “Ég er að drasla til afþví ég ætla að vera rokkari!”
Já, börnum dettur ýmislegt í hug ![]()


