Hvatningardagatal fyrir börn

by Jonathan Gerlach on July 3rd, 2009

Ég hef lengi ætlað að post-a þessu á bloggið mitt …

Til að gera langa sögu stutta þá vorum við Erla lengi vel í vandræðum með að koma stráknum okkar (5 ára) í fötin á morgnanna. Hann vildi bara alls ekki fara í fötin og það tók oft langan, langan tíma að koma honum út úr húsi og við vorum að koma ansi oft of seint í vinnuna vegna þessa …

Eftir að hafa ráðfært okkur aðeins ákváðum við að útbúa svona hvatningardagatal fyrir snáða. Það virkar þannig að hann hefur 10 mínútur til að fara í fötin og ef hann nær því á þeim tíma þá fær hann einn límmiða. Límmiðann setur hann svo á dagatalið sem er með 8 reitum. Þegar hann hefur sett síðasta límmiðann á blaðið fær hann “glaðning” (mikilvægt að kalla það glaðning en ekki pakka, gjöf eða annað slíkt). Glaðningur getur verið td. Herramenn bók, nýjir sokkar, vatnsbyssa eða eitthvað sem getur glatt hans litla hjarta. Mikilvægt er að halda sig alltaf við sama tímann (10 mín) og aldrei breyta honum. Einnig er mikilvægt að foreldrið ráði hvenær tíminn fer af stað en ekki barnið. Ef tíminn rennur út og barnið er ekki komið í fötin þá er enginn límmiði, svo einfalt er það.

Við notumst við tvö hvatningardagatöl, eitt á morgnanna fyrir að fara í fötin og eitt á kvöldin fyrir að fara í náttfötin. Þetta hefur létt alveg ótrúlega á okkur hjónum og auðvitað á litla snáðanum líka, sem fær reglulega glaðning.

Ég ráðlegg fólki að vera ekki með fleiri en 2 dagatöl í gangi hverju sinni. Allavega fór kerfið í algjört rugl þegar við ætluðum að bæta við þriðja dagatalinu og þá vildi hann allt í einu ekki fá neinn límmiða (sennilega of mikil pressa að standa sig :)).

Vonandi nýtist þetta einhverjum sem les þetta. Það er nóg að sækja þessi skjöl og prenta út úr prentaranum heima. Límmiða er hægt að kaupa ódýrt í Bónus og svo er hægt að blanda saman flottari límmiðum úr Pennanum/Eymundsson.

Gangi ykkur vel!

Á morgnanna
Á kvöldin
Morgunmaturinn

From Daglegt