Herbert Guðmundsson árið 1986 - Vel fyndið
Vá, þetta er yndislegt myndskeið. Að sjá þarna Herbert Guðmundsson með ljósu lokkana, Agnesi Bragadóttur með fallegu vöflurnar í hárinu, Ómar Ragnarsson (ennþá með smá hár þarna) og Sigmund Erni, öll sitjandi við sama borð að ræða um velgengni Hebba.
Hér er ein spurningin sem Agnes spyr Hebba:
Agnes: Ég hef ákveðnar fregnir af því að þú hafir ákveðið að spila stórt í lífshappdrættinu og þú hafir lagt allt þitt undir þegar solo-ferill þinn hófst með plötunni Dawn of the Human Revolution og þar sem topp lagið Can’t Walk Away var … Hvernig þorðiru að taka svona mikla áhættu?
Herbert: To be or not to be (vandræðaleg þögn).
Nú er gaman að skoða hvar þetta fólk er í dag … öll nánast á hverjum degi fyrir framan myndavélina nema elsku besti Herbert. Hann er örugglega sveittur í stúdíóinu að vinna að annari sólóplötu fyrir aleiguna.