Til allra Moggabloggara

by Jonathan Gerlach on December 4th, 2008

Ég skellti upp úr þegar ég rakst á kreppuhornið í Fréttablaðinu í gær. Þar er blogghetjan sjálf Katrín Atladóttir spurð út í kreppuna og svar hennar var eins og togað úr eigin munni.

„Það er tvennt í stöðunni: að verða Moggabloggari eða líta á kreppuna sem tækifæri. Betra væri að fleiri veldu seinni leiðina.‟

Katrín fær plús í kladdann hjá mér fyrir þessi spakmæli :)

From Daglegt