Ó Bama!

 

Ég lagði nú ekki í að vaka eftir niðurstöðunum úr kosningunum í nótt en vaknaði reglulega til að fylgjast með (já, ég á það til að vakna 4-5 sinnum á næturna allajafna). Vaknaði svo kl. 6 í morgun til að skoða vefmiðlana og mér til mikillar ánægju sá að Obama hafði tekið forsetakosningarnar í BNA með trompi, hann eiginlega rústaði þessu :)

Byrjaði svo vinnudaginn á að horfa á ávarpið hans síðan í gær þegar ljóst var að hann hafði unnið. Obama er virkilega góður ræðumaður og jafnvel nær því að vera predikari en ræðumaður en það er önnur saga.

Tags: ,

This entry was posted on Wednesday, November 5th, 2008 at 10:44 am and is filed under Daglegt, Stjórnmál. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

Leave a Reply