Þetta er skemmtilegt. Polaroid myndastaðallinn er svo gott sem dauður þar sem varla er hægt að fá filmur í þetta lengur. Við náðum að vísu að redda nokkrum pökkum fyrir giftinguna okkar en það kostaði líka morðfjár! Með Poladroid forritinu er hægt að leika sér með myndirnar sínar og láta forritið um að framkalla þetta “stafrænt” með öllum þessum fallegu “effectum” sem nást með Polaroid myndatækninni.
Hægt er að nálgast forritið hér.