Fyndið. Þegar maður bloggar (eða reynir að blogga) þá verður alltaf erfiðara og erfiðara að blogga eftir því sem lengra líður á milli færslna. Þá verður alltaf meira og meira sem kemur fyrir í hinu daglega lífi og svo safnast þetta upp og á endanum fer allt í lás og ekkert gerist á bloggsíðunni í marga mánuði. Ætli það sé til nafn yfir þetta? Svona eins og “writers block?” … Blogglock kannski?
Við hönnuðirnir hendum bara inn nýju útliti og þá er hægt að byrja aftur …
Allavega, ekki mikið frá að segja núna. Nú sitja bara allir heima, drekka áhyggjurnar í burtu og bíða eftir að lífeyrissjóðirnir komi þessu ágæta landi til bjargar. Það er sko sannarlega allt farið til fjandans.
Reyni svo að láta ekki líða of mikinn tíma í næstu færslu enda er alveg glás að segja frá svosem …. steggjaveislan, brúðkaupið, ferðin til Krít og margt margt fleira :)