Þá er búið að taka hina hliðina. Ég átt nefnilega eftir að taka vinstri endajaxlana og hef hálfpartinn verið að forðast það í átta ár því þegar hægri hliðin var tekin þá átti lenti ég í mjög vondri reynslu (sem ég nenni ekki að fara útí hér :))
Hörður tannlæknir massaði þetta þó mjög vel og var snöggur að. Þessar tennur eru heldur ekkert litlar, massívar rætur og allt.
Því sit ég hér við tölvuna, þurfti að taka frí í vinnunni og var að down-a Panodil til að slá á bólguna því ég er farinn að líta út eins og hamstur, öðru megin.
Kannski maður taki því rólega um helgina, held semt ekki. Nýr vefur að fara í loftið á þriðjudaginn og ég þarf að vera á “stand-by” alla helgina … gaman!