51:19

MiðnæturhlaupÞetta er tíminn minn og ég er bara nokkuð sáttur við hann. Ég tók semsagt þátt í Miðnæturhlaupi Powerade á mánudaginn var og ákvað að hlaupa 10 km með nokkrum félögum úr Landsbankanum. Ég verð að viðurkenna að ég var örlítið stressaður fyrir hlaupið þar sem ég hafði ekkert náð að æfa og vissi ekkert í hverskonar formi ég var í fyrir átökin.

Það kom svo á daginn að ég var í betra formi en ég átti von á. Eftir hálfan fyrri hringinn í hlaupinu var ég ekki bjartsýnn, fannst eins og ég ætti ekki meiri orku en 5 km. en áður en ég vissi af var vélin farin að mala og ég tölti þetta bara vandlega þangað til síðasti kílómeterinn var eftir en þá gaf ég duglega í og vann mig upp um 5 sæti. Kom Sigur Rós í eyrum á harða hlaupum í markið og fagnaði að sjálfsögðu mikið (auk þess að fá krampa í báða kálfa! :))

Sáttur við gott hlaup fórum við félagarnir í sund þar sem tekið var við bikurum og öðrum verðlaunum. Ég uni sáttur við mitt, 197 sæti af 378. Nú er bara að halda áfram að hlaupa …

197   51:19   Jonathan G Pedersen    1977   19 - 39 ára

This entry was posted on Wednesday, June 25th, 2008 at 9:18 pm and is filed under Daglegt, Íþróttir. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

Leave a Reply