Helgin

Mjög góð helgi að baki. Eftir vinnu á föstudag skellti ég mér í sumarpartý Rue De Net en þeir eru einmitt hérna steinsnar frá bankanum á Vesturgötu 3. Þar gæddi maður sér á Tapas og rabbaði við mann og annan, þá sérstaklega verslunarstjóra nýrrar netverslunar Nýherja sem ég einmitt hannaði um daginn.

Þaðan lá leiðin heim, beint upp í sófa að horfa á Holland - Frakkland í sjónkanum. Það var auðvitað hin besta skemmtun eins og allir þeir leikir sem ég hef horft á á EM hingað til (Áfram Holland!). Vonandi verður restin bara jafn góð …

Á laugardaginn kíktum við Erla í bæinn og versluðum aðeins. Ég keypti mér jakkaföt og skyrtu og Erla gallabuxur og belti. Fórum svo með Guðjón Inga í næturpössun til Helgu ömmu og fórum svo til móts við Elvu og Magga sem biðu eftir okkur uppi á Smáratorgi. Við fórum svo þaðan beint í Bláa lónið í góða veðrinu og slöppuðum vel af þar, þrátt fyrir mikinn fjölda fólks sem var einmitt þarna í sömu erindagjörðum :)

Eftir gott afslappelsi var farið aftur í bæinn og snædd pedsa að hætti Pizza Company á Laugarveginum.

Sunnudagurinn fór svo í vinnu niðri í Landsbanka ..

Ég lofaði mér nú því að fara ekki að blaðra um eigin líkamsrækt hérna á blogginu en get kannski sagt frá því að ég skráði mig ásamt vinnufélögum mínum í vefdeild Landsbankans í 10km Miðnæturhlaup ÍBR sem haldið verður á Jónsmessunótt. Kannski maður hlaupi duglega og velti sér svo upp úr dögginni … einhver með??

 

This entry was posted on Monday, June 16th, 2008 at 9:04 am and is filed under Daglegt. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

One Response to “Helgin”

  1. Harpa Says:

    haha.. ég tek þátt í jónsmessu”gleðinni” í anda :)

Leave a Reply