Löngu tímabært líkamsræktarátak hófst í gær. Ég verslaði mér eitt þriggja mánaðar kort í World Class og ætla að hlaupa og lyfta lóðum á 15 hæð turnsins eins oft og ég mögulega get. Ég ætla þó að vera hæfilega hógvær og ekki blaðra um það hér í hvert skipti sem ég fer og hreyfi mig eins og
ákveðnar pylsur sem ég þekki
Svo er bara málið að vera orðinn helmassaður fyrir brúðkaupið, massaður í rusl og tanaður í dras!
Eru ekki allir örugglega búnir að taka frá daginn 23. ágúst (Menningarnótt!!). Boðskortin fara nefnilega bráðlega í póst ………
hehehe já það er nokkuð ljóst að það er svoldið gaman að lesa bloggið hjá pylsunni og sjá allar æfingarnar - og alveg póttþétt engu gleymt og vegalengdirnar nákvæmar hjá pylsunni.
…en já nú er bara að massa sig í rusl fyrir 23/8 - merkisdagur!!
Það þykir bara það merkilegt að ég drattist framúr rúminu og hreyfi mig að það er eins gott að allir viti af því! Auk þess heldur það manni við efnið að segja frá því, hefur allavega virkað hingað til…
…auk þess eru kerlingarnar alveg vitlausar í ‘okkur’ íþróttamennina!