Ótrúlega nett helgi að baki. Við fórum nokkrir drengir (og stúlkur) úr Landsbankanum til Amsterdam á föstudagsmorgun. Ferðalagið gekk nokkuð greiðlega fyrir sig fyrir utan einn sauð í hópnum (Össi!!) sem ákvað að sofa yfir sig og mæta á allra síðustu stundu í flugið, án þess að vera með nokkurn farangur!
Veðrið í Amsterdam hafði víst ekki verið upp á marga fiska það sem af var sumars en daginn sem við komum tóku hitatölurnar kipp og ruku upp yfir 20 gráðurnar. Það var því góð tilbreyting að check-a sig inn á hótelið og setjast út í hótelgarð með einn ískaldann
Seinna um daginn var svo farið af stað og höfuðstöðvar Icesave voru skoðaðar í bak og fyrir. Þær eru staðsettar í nýju “viðskiptahverfi” rétt fyrir utan miðbæ Amsterdam og eru virkilega flottar.
Þarnæst var hoppað upp í rútu og brunað í klukkutíma niður að strandlengju í Amsterdam. Þar var stoppað við sætann strandarbar sem heitir Zout (eða suður á Hollensku). Þar voru matur, vín og ræðuhöld vinsæl langt fram eftir kvöldi og voru sumir (Össi!) í svo góðu stuði að þeir hentu sér út í sjóinn með vegabréfið sitt og iPhone-inn sinn (sem notabene lifið þetta ekki af). Þarnæst var haldið aftur í bæinn og klúbbarnir þræddir fram eftir morgni.
Það var þreyta í mannskapnum á laugardagsmorgun og held ég að flestir hafi sleppt morgunmatnum að þessu sinni. Ég vaknaði rétt fyrir hádegi og skellti mér niður í lobby og hitti svo strákana aðeins seinna og fórum við í bæinn og rápuðum um yfir prísaðar verlsanir Amsterdam í leit að einhverju sniðugu að kaupa. Verðlagið er eins og gefur að skilja ekki Íslendingum sérlega hagstætt og því ekki mikið um innkaup í þessari ferð.
Um kveldið var svo farið á næturklúbb slash veitingastað sem er staðsettur á efstu hæð í yfirgefnu vöruhúsnæði við hafnir Amsterdam borgar og heitir Club 11. Aðkoman var beinlínis óaðlaðandi og héldum við fyrst að leigubílstjórinn væri að gera grín. Svo var nú ekki og eftir að hafa þrætt langa, langa ganga, eina lyftu og tíu hurðir sem allt var “graffað” þá fundum við staðinn á elleftu hæð. Maturinn var nú ekkert sérstakur og ekki þjónustan heldur en þegar fór að dimma þá fylltist húsið af allkonar fólki sem var greinilega að fara að skemmta sér.
Við ákváðum hinsvegar að yfirgefa staðinn og skella okkur í smá útsýnisferð um Rauða hverfið alræmda. Þar var auðvitað margt um manninn og mikið að gerast, konur í gluggum eins og síðast þegar ég fór til Amsterdam og “dirty” búðir á hverju götuhorni. Ég gerðist líka svo frægur að vera næstum rændur! Já, ég sagði það, rændur! Var að labba í mesta sakleysi með fallega iPhone-inn minn og hafði dregist aðeins afturúr hópnum. Áður en ég vissi af voru 6 þeldökkir menn búnir að umkringja mig og ætluðu greinilega að hafa af mér símann. Ekki varð þeim kápan úr þeim klæðunum því bjarnargrip mitt var svo sterkt. Fiffi var þá var við hvað var í gangi og kom mér til hjálpar og virtust þeir þá hræðast og sumir forðuðu sér. Sá er fremstur fór í hópnum sló hinsvegar Fiffa í andlitið. Þetta var mikið upplifun en maður má kannski bara þakka að hafa ekki verið stunginn eða eitthvað þaðan af verra …
Sunnudagurinn fór svo bara í reglulegt bæjarrölt, skoðuðum fleiri búðir, drukkum aðeins meira öl og lögðum okkur aðeins undir tré fyrir framan Ríkislistasafnið.
Allt í allt, frábær ferð og ennþá skemmtilegri borg.
Ég var auðvitað duglegur að henda inn myndum á Flickr-ið þegar ég hafði tækifæri … sú síða er hér.
…borgar sig greinilega að vera í hóp á Amsterdam!! Annars hefðuru bara átt að vaða í þá!!!