Blessuð blíðan

Gott veður?Það á auðvitað að loka öllu draslinu á dögum sem þessum þar sem hitinn fer loksins yfir 15 gráður. Vonandi er þetta bara forsmekkurinn af því sumri sem koma skal. Ég yrði glaður ef sumarið 2008 yrði bara helmingur af því sem það var í fyrra :)

Svo er gott veður í Kaupmannahöfn líka, hvað er með það?? Ég hélt það gæti ekki verið gott veður í Reykjavík og Kaupmannahöfn á sama tíma …

Er annars búinn að vera fyrstu daga vikunnar niðri í Háskóla Íslands þar sem ég er að vinna að nýjum vef fyrir skólann og verð líklega út vikuna eða fram á föstudag þegar ég fer til Amsterdam með vefdeild Landsbankans. Það verður vandað :)

Tags: , ,

This entry was posted on Tuesday, June 3rd, 2008 at 1:14 pm and is filed under Daglegt, Hönnun. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

Leave a Reply