Fór á leikinn með Gimma í gær í boði Landsbankans. Djöfull vorkenni ég því fólki sem þurfti að borga sig inn á þennan ófögnuð. Við sátum þarna í heilar 90 mínútur og sáum nokkur hálffæri Íslendinga renna út í sandinn á meðan Walesverjar nýttu sitt eina færi og settu boltann í netið.
Ef KSÍ ætlar að hafa svona knattspyrnu á boðstólnum þá er nú lágmark að bjóða upp á bjór á leiknum eða gaura/gellur sem labba um og öskra “Peanuts … GET YOUR PEANUTS!” Engar sjoppur einusinni, bara aumur meðlimur Skítamórals glamrandi á gítar í hálfleik. Saaaaaad.
Ég hafði að sjálfsögu rétt fyrir mér með fyrri færslu. Nú er Youtube búið að banna Sigur Rósar myndbandið eins og við var að búast. Í Bandaríkjunum má nefnilega sýna aftökur, sprengjuárásir og annan viðbjóð en þegar kemur að nekt, þá er búllunni lokað.