Djöfull var hressandi að verða vitni að almennilegum jarðskjálfta hér í Reykjavík. Þetta átti víst upptök á Selfossi en það fór ekki framhjá neinum hérna í Landsbankanum, sumir meira að segja hlupu út á götu í æðiskasti.
Gaman líka að sjá að allar fréttasíður landsins (visir.is og vedur.is), auk símakerfisins fara á hliðina við svona atburði. Hvað gerist þegar eitthvað virkilega stórt gerist??