Já, óhætt að segja að dagarnir líði hratt þessa dagana. Júní handan við hornið og sumarið komið vel af stað á Íslandi. Það er þó eins og það sé einhver lægð yfir landinu. Heyri tengdó einmitt tala um það áðan að það er næstum eins og það sé eitthvað í loftinu, þar er einhvernveginn erfiðara að fara á fætur á morgnanna núna. Flestir dagar (fyrir utan daginn í gær reyndar) hafa verið gráir og þótt hitastigið sé allt á uppleið þá er búið að vera mjög grátt undanfarið … Vonum að þetta sé bara tímabundið og sólin fari að ylja okkur áður en mánuðurinn er úti.
Á föstudaginn mætti ég til vinnu og fann fyrir miklum verk í öxlum og hálsi þangað til að það var orðið svo óbærilegt að ég fékk hjálp frá vinnufélaga mínum við að hafa uppi á Kínverskum nuddara á Skólavörðustígnum. Pantaði tíma þar og var mættur upp úr 14. Þar talaði ég við mann sem leit skuggalega út eins og Chow Yun Fat, nema hárlaus! Ég fékk sérdeilis prýðilegt kínverskt nudd og Chow Yun kom svo og hnikkti mig til eins og hann hefur (vonandi) prófgráðu til að gera. Ég fékk svo tíma á sunnudeginum (í gær) og aftur á morgun þriðjudag. Í tímanum í gær var annar gaur sem nuddaði mig og fékk ég ansi massíft fótanudd. Já, þið heyrðuð rétt, gaurinn bókstaflega labbaði á bakinu á mér og stundum á tánum einum … svaðalegt!
Eurovision var á laugardaginn, nenni nú ekki að fara sérstaklega út í keppnina sjálfa enda er hún orðin hálfgerður skrípaleikur. Frábær frammistaða okkar tryggði okkur 14 sætið í keppninni en stærsti sigurinn var að vera á undan Svíum og Dönum, klárlega!
Annars er ég búinn að vera heima í dag með einhverja kvefpest. Verð nú sjaldnast veikur en ákvað að taka ekki neina áhættu og hélt mig heima í dag og tók því rólega.