Veðrið að skána

Það er óhætt að segja að veðurblíðan hafi tekið kipp í dag … loksins. Þá er ekki að segja að hér sé 25 stiga hiti eins og hjá ræfils vinum mínum í Kaupmannahöfn heldur skín sólin og hitinn við 10 gráðurnar. Ekki beint stuttermaveður en við Íslendingar sættum okkur við peysuveður svo lengi sem sólin sé ekki í felum.

Við félagarnir í vefdeildinni tökum reglulega Ingólfstorg-Austurvöll-Við tjörnina rúntinn okkar þegar vel viðrar. Þessi mynd var einmitt tekin við þetta tilefni í dag.

Annars er hitt og þetta að frétta enda langt síðan ég bloggaði síðast. Ég átti afmæli á föstudaginn og Erla fór með mig í óvissuferð út á land og var búin að panta “sæludaga” á Hótel Heklu fyrir sunnan. Það var anskoti fínt afslappelsi og svo fengum við svona góðan mat líka.Á laugardeginum brunuðum við svo í bæinn aftur, kíktum í smá verslunarleiðangur og versluðum í matinn fyrir matarboð kvöldsins. Gestir voru að austan, nefnilega pabbi hennar Erlu, Gurra konan hans, Elva systir Erlu og Maggi svilz. Grillið var brúkað á alla vegu enda veðrið vel við hæfi. Svo var póker spilið rifið upp og tekið nokkuð vel á því með spilapeningum fram eftir kvöldi.

Svo var auðvitað frí á mánudeginum sem ég reyndar notaði til að vinna upp gömul verkefni fyrir Skapalón. Það á eftir að hanga í mér í nokkrar vikur til viðbótar. Var ég búinn að segja öllum að ég hef hafið störf í Landsbankanum??

Missti af Listaháskóla reunion-i sem haldið var á afmælisdaginn minn … það var miður, hefði gjarnan viljað hitta gamla félaga og sjá hvað þau eru að bauka. Það verður bara að bíða í 5 ár til viðbótar :)

Johnny’s out. 

This entry was posted on Wednesday, May 14th, 2008 at 4:45 pm and is filed under Daglegt. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

One Response to “Veðrið að skána”

  1. Solla Says:

    Til hamingju með daginn um daginn :D Við söknuðum þín á reunion-inu. Ég var ekkert smá heppin að vera á landinu til að sjá framaní alla eftir svona langan tíma.

Leave a Reply