Ég var að ganga úr vinnunni í gær út Hafnarstrætið og tók eftir því að allir bílar í götunni voru með stöðumælasekt! Hvernig stendur á því að fólk er hætt að greiða í stöðumæla í dag, eru sektirnar kannski svona lágar að það borgi sig hreinlega að taka sektina frekar en að vera leggjandi í bílastæðakjallara út um allar trissur?Held mér sé óhætt að segja að bílastæðavandræði hér í miðborginni eru fyrir neðan allar steinhellur! Ég starfa ásamt þúsunum öðrum í Landsbankanum og okkur er gert að leggja í gjaldskyld stæði út um alla borg. Baráttan á morgnanna er um ódýrustu stæðin og þá er eins gott að vera mættur fyrir 8.30 því annars þarftu að leggja úti á Granda!!Kynnti mér aðeins leggja.is í gær og ákvað að skrá mig þar sem þeir eru loksins byrjaðir að bjóða upp á eitthvað annað en þetta kjánalega mánaðargjald sem þeir buðu fyrst. Nú er hægt að leggja þar sem maður vill og senda bara eitt SMS þegar þú leggur og eitt þegar þú keyrir í burtu. Gott framtak en leysir þó ekki vandræði okkar hinna, sem þurfa að leggja hér á hverjum degi …
Kallinn greinilega kominn í gang aftur. Gaman að því