Spilin sett á borðið

Fyrir þá sem ekki vissu þá var ástæða flutinga okkar Erlu til Íslands ekki betra veður og ódýr matvara. Erla greindist með krabbamein í botnlanga núna í desember og fluttum við heim í janúar vegna þessa. Við erum að fara til Bandaríkjanna núna á laugardaginn og Erla fer svo í stóra skurðaðgerð þann 29. febrúar næstkomandi.

Erla rúllaði upp Kastljósinu í kvöld eins og henni er einni lagið og fannst mér hún standa sig alveg stórkostlega. Þar fjallar hún um sjúkdóminn, skurðaðgerðina og framtíðina. Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér.

Kveðja,

Jonni

This entry was posted on Wednesday, February 20th, 2008 at 9:01 pm and is filed under Daglegt. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

2 Responses to “Spilin sett á borðið”

  1. Rósa Says:

    kommentaði á bloggið hjá Erlu en langaði að kommenta hjá þér líka, ég þekki ykkur ekkert (komst reyndar að því að ég kannast við vin ykkar hehe) en mig langaði bara að segja ykkur að ég mun hugsa til ykkar og senda góða strauma. Góðar hugsanir margra geta ekki gert annað en hjálpað til :)
    Óska ykkur alls góðs á komandi mánuðum.
    Kveðja
    Rósa
    ps. Þú er heppinn maður því að Erla virkar sem frábær manneskja :)

  2. guggi Says:

    Gellan var flott í sjónvarpinu. Vil svo senda þér líka klapp á bakið: Jonni, þú stendur þig frábærlega!!!

    :)

Leave a Reply