Það má margt vont segja um ungviðið í dag. Þetta er latt, feitt og er heima alla daga að spila Playstation. En eftir að hafa tekið hádegisrölt í Skeifunni í dag var ekki annað að sjá en að þessir sömu krakkar hafi rifið sig upp úr sófanum, klætt sig í öskubúning og haldið af stað með tóman plastpoka og söngbækur (sumir frumlegri en aðrir). Úr hverri átt streymdi hópur barna með nammiglampa í augum tilbúið að leysa þrautir langþreyttra búðareigenda. Ég gat ekki annað en vorkennt þeim (búðareigendunum þeas.), hlustandi á þetta jarm í allan dag, misfalskt auðvitað.
Svo er bara spurning hvort á morgun haldi rútínan áfram. Krakkarnir aftur í sófann, latari sem aldrei fyrr nema nú með fullan Bónuspoka af nammi.