Archive for September, 2006

Eftir viku …

Posted by Jonathan Gerlach on September 28th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

… stend ég með hinum túristunum á Times Square með myndavél í annari og Starbucks Creame Vanilla Latte Light í hinni mmmmmmmmm.

Rónar

Posted by Jonathan Gerlach on September 26th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Í Kaupmannahöfn búa rónar. Það mætti jafnvel ganga svo langt og segja að Kaupmannahöfn sé “rónaborg.” Heima á fróni er flott að vera róni, þú færð flott götunafn eins og Lalli Johns eða Hringur og ef þú ert heppinn þá kemuru í Séð og Heyrt afþví þú fannst gamlan leðurjakka á haugunum.
Hér eru rónar ómerkilegir. [...]

Kengúra, Christania og mark frá miðju

Posted by Jonathan Gerlach on September 24th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Þá hefur þessi ágæta helgi runnið sitt skeið og hefur vægast sagt verið stíf dagská síðustu daga. Á föstudeginum var haldið, ásamt pabba hennar Erlu og konu hans á
Reef’n Beef þar sem ég fékk tækifæri á að smakka Emúa og Kengúru. Svolítið spes kjöt að sjálfsögðu en mjög gott engu að síður. Í eftirrétt [...]

Helgar update

Posted by Jonathan Gerlach on September 19th, 2006 under Daglegt  •  1 Comment

Var að ljúka við að horfa á heimildamyndina “
I Am A Sex Addict.” Hér er á ferðinni einstaklega opin og hreinskilin kvikmynd um kynlífs- og hórufíkn leikstjórans Caveh Zahedi og hvernig hann glímir við brenglaða ímynd sína á kvennfólki.
Þessi mynd var reyndar ein af tveim heimildamyndum sem ég horfði á um helgina. Hin myndin sem [...]

The Big Apple

Posted by Jonathan Gerlach on September 14th, 2006 under Daglegt  •  3 Comments

Þá fer óðum að styttast í ferð okkar til New York. Ég er orðinn hálf stressaður þar sem ég fékk það starf að skipuleggja ferðina. Það er svo ótrúlega mikið hægt að skoða í New York og ég er hræddur um að maður missi af helmingnum. Látið mig endilega vita ef það vantar eitthvað á [...]

Long time

Posted by Jonathan Gerlach on September 13th, 2006 under Daglegt  •  2 Comments

Langt síðan ég bloggaði síðast, eiginlega allt of langt síðan. Best að punkta niður það sem hefur verið að gerast síðustu vikur.

Ég fór til Íslands “on business” eins og jakkafötin segja.
Stofnaði mitt eigið fyrirtæki og sagði upp 80% af núverandi starfi mínu hjá
idega.
Nýja fyrirtækið mitt heitir Skapalón hönnunarhús ehf.
Heimasíða fyrir fyrirækið er þegar komin [...]

Magni-ficent!

Posted by Jonathan Gerlach on September 6th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Jæja, þá er Magni Rockstar búinn að fá mín 30 atkvæði, læt það duga í bili. Eins og flestir Íslendingar þá settist ég fyrir framan tölvuna í morgun, flutti mig um set “tímalega” yfir til Honalulu og tók þátt í kosningunni sem ennþá er í gangi þar. Íslendingar eru svo sniðugir, alltaf að finna glufur [...]