Archive for August, 2006

Kuldakveðja

Posted by Jonathan Gerlach on August 29th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Þessi færsla kemur úr ísköldu klakaboxinu, Íslandi. Fór í loftið í gærkvöld, þokkalega slakur á því. Lítið að gera á flugvellinum og ég slapp nokkuð auðveldlega í gegnum tjékkin-ið og vopnaleitina. Ráfaði aðeins um í flughöfninni áður en ég hélt að lokum inn í flugvél.
Ég flaug með Iceland Express í þetta skipti og mundi ég [...]

Daglega hugleiðingin

Posted by Jonathan Gerlach on August 24th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Mikið var gaman að stíga út í glampandi sólskin í morgun, setjast á reiðfákinn og halda áleiðis í vinnuna. Þetta er ágætis tilbreyting frá því að hjóla í mígandi rigningu, það get ég alveg sagt.
Á mótum Smallegade/Gl. Kong Vej og Falconer Álle er Araba strákur sem réttir reiðhjólafólki og öðru gangandi fólki dagblaðið. Ég geri [...]

Bullshit!

Posted by Jonathan Gerlach on August 23rd, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Ég er búinn að vera að fylgjast með frábærum þáttum sem heita “Penn og Teller: Bullshit.” Þessir þekktu töframenn fara þar ofan í saumana á veraldlegum hlutum eins og trúverðugleika Biblíunar og blótsyrðum landa sinna.

Þættina er hægt að nálgast frítt á
Google video. Enjoy!

Frétt ársins?

Posted by Jonathan Gerlach on August 22nd, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Ég ætla að skjóta á að
þetta verði frétt ársins. Afhverju fréttir um stríð, hungur og atvinnuleysi? Þetta er það sem fólk vill fá að sjá!
Osama var/er semsagt heitur fyrir ræsisrottunni Whitney Houston, guð hjálpi mér. Það er nú eitt að vera hryðjuverkamaður, en að vera skotinn í krakkhóru?
Þá segir Boof að bin Laden hafi [...]

Google jörð

Posted by Jonathan Gerlach on August 21st, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Mikið hef ég gaman að því að surfa um heiminn með músinni minni og Google Earth. Með nokkrum smellum er maður búinn að zoom-a á húsnúmer hjá félaga sínum sem var að flytja til Bandaríkjanna. Alveg ótrúlegt.
Einusinni fór ég til Los Angeles og keyrði þar um. Ég var svaka spenntur fyrir að sjá Hollywood skiltið [...]

Nokkrir punktar

Posted by Jonathan Gerlach on August 14th, 2006 under Daglegt  •  3 Comments

Veðrið í Kaupmannahöfn gæti ekki verið meira “íslenskt!” (Rok og rigning)
Töpuðum 2-1 á móti Karólínu í gær. Súrt.
Ég hef aldrei verið með jafn miklar harðsperrur!
Gras.is með
nýja síðu. Laglega gert hjá D3. Fínt fyrir okkur fótboltaáhugamenn.
Búið að bóka New York 4 - 10 október

Erfið byrjun

Posted by Jonathan Gerlach on August 10th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Það er ekki auðvelt að fara á fullt eftir 3 vikna rólegheit og tölvuleysi.
Frekar rólegt í vinnunni, er að vinna á hæga en afkastamikla tempóinu hlustandi á Antony and the Johnsons (Tona og Jónsana). Þið vitið hvað ég á við. Ég er nefnilega að detta í þetta Antony and the Johnsons æði sem allir eru [...]

Waiting…

Posted by Jonathan Gerlach on August 8th, 2006 under Daglegt  •  1 Comment

Ég verð bara að mæla með
þessari mynd fyrir þá sem hafa ekkert betra að gera.

Back in the game

Posted by Jonathan Gerlach on August 8th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Sumarfríið búið. Þvílík sorg. Þetta eru búnar að vera fínar 3 vikur þótt svo ein þeirra hafi farið í rúmlegu og veikindi. Það þýðir þó ekki að örvætna því við konan erum þegar farin að skipuleggja næsta frí. Í byrjun október ætlum við að fara í víking til Stóra Eplisins, New York. Þar ætlum við [...]

Sprite Zero

Posted by Jonathan Gerlach on August 2nd, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Rakst á þessa skemmtilegu Sprite Zero auglýsingu niður við Frederiksberg Centre í vikunni. Sýnir að ef budgetið er gott og viðskiptavinurinn “líbó” þá er allt hægt.
P.S Auglýsingin breytist semsagt eftir því hvar maður stendur og horfir á