Archive for June, 2006
Posted by Jonathan Gerlach on June 30th, 2006 under Daglegt •
1 Comment
Mikið saknar maður hennar þegar hún hverfur í nokkra daga. En það er sennilega betra en að þurfa að sakna hennar í nokkrar vikur eða mánuði eins og sumir gera í klakaboxinu.
Tók klassískan “föstudagspakka” í hádeginu. Hjóla niður Vestebrogade og niður á Strikið þar sem tékkað er á púlsinum. Slatti af fólki, mis vel [...]
Posted by Jonathan Gerlach on June 28th, 2006 under Daglegt •
No Comments
Loftsteinn dauðansHvað mundi gerast ef loftsteinn rækist á Jörðina? Horfið á þessa ógnvekjandi mynd til að komast að sannleikanum …
Posted by Jonathan Gerlach on June 26th, 2006 under Daglegt •
1 Comment
Á föstudag fyrir helgi opnaði
Sjóvá nýtt hús sem allt er helgað forvörnum. Húsnæði liggur svo til í bakgarðinum hjá Sjóvá eða í því húsnæði sem áður hýsti prentvélar
Morgunblaðsins.
“Markmiðið með Forvarnahúsinu er að efla og samræma forvarnir í landinu með aðal áherslu á slysavarnir. Forvarnahúsið verður þannig öflugt þekkingarsetur um slysavarnir. Eitt helsta hlutverk [...]
Posted by Jonathan Gerlach on June 25th, 2006 under Daglegt •
No Comments
Ég var að enda við að horfa á leik Portúgala og Hollendinga. Í leiknum voru gefin 12 (16) gul spjöld og 4 rauð! Í gamla daga fékk fólk eitthvað fyrir peningana sína þegar það borgaði sig inn á slíkar viðureignir. Núna eru þetta bara slaksmál í hverju horni eftir að einhver hrynur í grasið við [...]
Posted by Jonathan Gerlach on June 25th, 2006 under Daglegt •
1 Comment
Enn ein fín helgi að baki og ekki úr vegi að líta um öxl og telja upp það markverðasta.
Fimmtudagur: Unnum fyrsta bikarleik sumarsins 2-3 eftir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik. Sigurmarkið skoraði Jón “sekkur” 10 sekúndum fyrir leikslok. Fín byrjun á helginni.
Föstudagur: Vaknaði þunnur eftir mikla bjórdrykkju og pokerspil kvöldið áður. Ekki svo [...]
Posted by Jonathan Gerlach on June 22nd, 2006 under Daglegt •
1 Comment
Fyndið hvað allt verður hallærislegt þegar það er fært yfir á íslensku. Meina það ekki í neikvæðri merkingu, frekar svona skemmtilega hallærislegt. Hver las ekki greinina hans Litla Hrauns Árna um að íslenska orðið MP3 spilari og kalla það “Tónhlöðu.” Mér fannst það amk. skemmtilega hallærisleg lesning.
En það var nú ekki það sem ég ætlaði [...]
Posted by Jonathan Gerlach on June 20th, 2006 under Daglegt •
No Comments
Enn ein fín helgi að baki. Ég var í fríi í gær svo það er eiginlega mánudagur í manni í dag.
Laugardagurinn fór í það að kveðja runa og Heiðrúnu sem voru að fara í langt ferðalag til Íslands. Ætluðu að keyra til Noregs og gista hjá vinafólki, keyra svo áfram til Bergen, gista á hóteli [...]
Posted by Jonathan Gerlach on June 17th, 2006 under Daglegt •
No Comments
… þá er kominn 17. júní. Ekki eins og maður taki mikið eftir því hérna enda hefur þjóðhátíðardagur Íslendinga lítið með Dani að gera. Svo er ekki einusinni rigning …
Annars hefur myndast örlítið tóm hjá okkur Erlu. Þórhallur og Þórunn fóru yfir hafið mikla í gærkvöldi og runi og Heiðrún lögðu af stað í ferðina [...]
Posted by Jonathan Gerlach on June 14th, 2006 under Daglegt •
No Comments
Var rétt í þessu að prufa nýjann
browser (vafra?) sem lofar góðu. Auk hans nota ég auðvitað Safari og Firefox en það er alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt. Hann til dæmis styður vel við Flickr, Photobucket og allar helstu blogg þjónustur á vefnum í dag svo það ætti að vera að auðvelt að blogga [...]
Posted by Jonathan Gerlach on June 12th, 2006 under Daglegt •
1 Comment
Er það bara ég eða er mbl.is að fara vel yfir strikið með þessum nýju auglýsingaborðum efst á síðunni. Þessi síða er orðin eins og argasti smáauglýsingavefur. Þetta er óþolandi.
Sjálfur skoða ég (eins og flestir Íslendingar) þessa síðu nokkuð reglulega, jafnvel oft á dag. Síðan verður auðvitað hæg fyrir vikið enda þarf að hlaða niður [...]