Helgin sem leið

Þetta var bara aldeilis prýðileg helgi. Á föstudaginn hélt Baldvin (FC Guðrún) upp á þrítugsafmælið sitt og mættu flestir strákarnir úr boltanum í veisluna. Þegar við laddmundur mættum á svæðið stóð afmælisbarnið við grillið og var að kokka upp glóðsteiktar rauðar pylsur á danska mátann. Pyslsunum var svo skolað niður með ca. 10 kössum af bjór (dugar ekkert minna). Á laugardeginum vaknaði ég svo gríðarlega “hress” eftir atburði næturinnar og ákvað að skella mér í dýragarðinn með Jr. Hitti runa og Ástþór Inga fyrir utan innganginn og við löbbuðum um garðinn í skíta kulda. Það var þó gaman að sjá að bæði ljónin og birnirnir í garðinum eru komin með afkvæmi og voru litlu birnirnir sérstaklega sætir. Fengum svo laddmund og tósu í kjúttling um kvöldið og horfðum á idol saman. Sunnudeginum eyddum við svo feðgarnir saman heima að leika á meðan mamma var að læra með runa (sem svaf víst allan tímann hehe) úti á Solbakken :)

This entry was posted on Monday, March 27th, 2006 at 8:50 am and is filed under Daglegt. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

2 Responses to “Helgin sem leið”

  1. Anonymous Says:

    …alltaf hægt að gera grín af því þegar ég seg!!!! zzzzzzzzzz

  2. Jonathan Gerlach Says:

    er nú stafsetninga nasistinn farinn að skrifa undir dulnefni?

Leave a Reply