Archive for March, 2006

Lífverðir drottningar

Posted by Jonathan Gerlach on March 31st, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Þegar maður vinnur við hliðina á Drottingunni kemst maður ekki hjá því að rekast á lífverði hennar hátignar af og til. Ef ég sé þá ekki yfir daginn þá tek ég stundum á mig krók á heimleið bara til að gleðja augun. Það er eitthvað svo róandi að horfa á þessa beinstífu sóldáta í sínu [...]

Radiohead tónleikar

Posted by Jonathan Gerlach on March 31st, 2006 under Daglegt  •  2 Comments

Þá er þetta komið á hreint.
Radiohead tónleikar í
KB Hallen 7. maí. Mikið hlakkar mig til.
Laddmundur, runi, Björgvin og gugga ætla öll að skella sér með og verður væntanlega staldrað við í mjöð á Peter Bangs áður en haldið verður á tónleikana enda á ég heima svo nálægt KB Hallen að það er [...]

Ljósmynda áskorun

Posted by Jonathan Gerlach on March 28th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Á laugardaginn kemur hef ég ákveðið að bregða mér í ljósmyndamaraþon, sem verður þó örugglega nær hálf maraþoni. Ég ætla mér að taka eina ljósmynd á dag sem ég gæti post-að hér á síðuna, sjálfum mér og öðrum til mikillar ánægju.
Ljósmyndaáhuginn er að kveikna aftur eftir smá dvala. Vorið er komið og manni er farið [...]

Helgin sem leið

Posted by Jonathan Gerlach on March 27th, 2006 under Daglegt  •  2 Comments

Þetta var bara aldeilis prýðileg helgi. Á föstudaginn hélt Baldvin (FC Guðrún) upp á þrítugsafmælið sitt og mættu flestir strákarnir úr boltanum í veisluna. Þegar við laddmundur mættum á svæðið stóð afmælisbarnið við grillið og var að kokka upp glóðsteiktar rauðar pylsur á danska mátann. Pyslsunum var svo skolað niður með ca. 10 kössum af [...]

Zoologisk Have

Posted by Jonathan Gerlach on March 25th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Jæja, við feðgar vorum að koma úr dýragarðinum. Öll dýrin virðast vera að eignast unga núna og sáum við litla ljónsunga og pínu ponku ponsu litla bjarnar unga sem voru svakalega sætir. Vorið ætlar greinilega að láta bíða eftir sér aðeins lengur því ég var gjörsamlega að krókna úr kulda í dýragarðinum. Fínasta skemmtun engu [...]

Með vorinu kemur annar litur

Posted by Jonathan Gerlach on March 19th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Það er óhætt að fullyrða að vorið er á næstu grösum. Hitinn loksins kominn upp fyrir frostmark á daginn og örlar meira á sólinni gert hefur síðustu vikur og mánuði, já mig hlakkar sko til!
Í tilefni þess að vorið fer að koma hef ég ákveðið að breyta yfir í hvítt á þessari síðu. Svarti liturinn [...]

Glitnir er rauður!

Posted by Jonathan Gerlach on March 17th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Þá hefur Íslandsbanki fengið vænlega yfirhalningu. Blái viðskiptaliturinn fékk að fjúka fyrir sjóðheitum lit Samfylkingarinnar (og Og Vodafone :)). Ætli landinn verði ekki að fá að venjast þessu aðeins, því þetta er talsverð breyting. Sjálfur er ég viðskiptavinur Glitnis (fyrrum Íslandsbanka) en þar sem ég bý ennþá í Kaupmannahöfn þá hef ég ekki orðið var [...]

Þriggja barna faðir

Posted by Jonathan Gerlach on March 12th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Í gær fengum við Erla tvö börn til viðbótar á heimilið. Runi og Heiðrún voru nefnilega að fara í matarboð með fjölskydu Heiðrúnar í Malmö og fengu því Ástþór Ingi og Kristján Daði að gista hjá okkur á meðan. Það er aldeilis búið að vera nóg að gera og ljóst að það er ekki tekið [...]

Arsenal for "real"

Posted by Jonathan Gerlach on March 9th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Mikið var gaman að sjá Arsenal komast áfram í Meistaradeildinni í gærkveldi. Leikurinn fór fram á Highbury og óhætt að segja að mikið hafi verið í húfi fyrir bæði lið (Arsenal og Real Madrid þeas.) Fyrir leikinn áttu þessi lið aðeins einn möguleika á titli í ár og var það Meistaradeildar titillinn. Leikurinn endaði 0-0 [...]

Ruglið

Posted by Jonathan Gerlach on March 7th, 2006 under Daglegt  •  No Comments

Enn og aftur var Metro-ið í ruglinu í morgun. Ekki að það gerist á hverjum degi en manni finnst það samt gerast allt of oft. Þegar ég mætti á Flintholm í morgun var pallurinn pakkaður af fólki. Þar sem ég er einstaklega “slank” (eins og danskurinn segir) þá náði ég að vippa mér fremst í [...]