Ömurlegasti dagur ársins!

Þá er James Blunt loksins búinn að gaula sitt síðasta og hundruðir Blunt aðdáenda streyma um stræti Peter Bangs Vej. Ég bý nefnilega við hliðina á KB hallen (á Íslandi væri það Laugardalshöllin) svo það fer ekkert fram hjá mér þegar það eru tónleikar í gangi. Það getur stundum verið pirrandi að heyra hlandölvaða danina hlaupandi um í leit að leigubíl heim og allt bílflautið sem fylgir (Danir eru crazy á bílflautunni!!) en ég læt það slide-a enda oft fín tónlist sem verið er að spila á þessum hljómleikum … repect. Annars er þetta búið að vera frekar dapur dagur vinnulega séð, er eiginlega búinn að sitja og horfa á skjáinn í allan dag. Sennilega þunglyndi bara. Engin furða að þetta sé kallaður ömurlegasti dagur ársins af sumum …

Góðu fréttirnar eru að á morgun verður pöntuð og borguð sólarlandarferð. Krít here I come!!

This entry was posted on Tuesday, January 24th, 2006 at 9:56 pm and is filed under Daglegt. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

Leave a Reply