Archive for November, 2005
Posted by Jonathan Gerlach on November 30th, 2005 under Daglegt •
3 Comments
Þá er afhendingu
Vefverðlaunanna lokið. Þau fóru fram við hátíðlega athöfn í Iðnó í gær. Þar sem ég bý erlendis sá ég mér ekki fært að mæta á verðlaunin sem ég hefði betur gert því ég vann til tvennra verðlauna (þegar ég segi “ég” þá á ég auðvitað við mig og alla þá sem [...]
Posted by Jonathan Gerlach on November 30th, 2005 under Daglegt •
No Comments
Fór á Mugision tónleika á föstudagskvöldið. Ég ætla ekkert að vera að skafa af hlutunum, maðurinn er snillingur! Við runi gerðumst svo danskir að við hjóluðum á tónleikana með aðra höndina á stýrinu og hina um ískalda bjórflösku. Mannmergðin var mikil þegar við gengum inn í reykmettann salinn á Mini Vega. Reykurinn vandist þó fljótlega [...]
Posted by Jonathan Gerlach on November 24th, 2005 under Daglegt •
No Comments
Við runi ætlum að skella okkur á
Mugison á morgun. Tónleikarnir verða að sjálfsögðu á Vega
Posted by Jonathan Gerlach on November 22nd, 2005 under Daglegt •
1 Comment
Djöfull er ég orðinn þreyttur á þessum lestum hérna í Danmörku. Ekki lestunum sjálfum beint heldur þeirri staðreynd að þær eru alltaf í einhverju rugli, seinar eða bilaðar.
Þó er allt betra en að keyra bíl. Sakna þess ekki neitt
Posted by Jonathan Gerlach on November 21st, 2005 under Daglegt •
1 Comment
í gær buðum við runa og Heiðrúnu, Þórunni og Þórhalli heim í mat. Eldað var dýrindis íslenskt lambalæri sem tók alls 3 klukkutíma að matreiða. Boðið var upp á ekta íslenskar grænar baunir sem svo var skolað niður með ísköldu malti&appelsíni. Ekki laust við smá heimþrá um leið og maður renndi þessu öllu saman niður. [...]
Posted by Jonathan Gerlach on November 15th, 2005 under Daglegt •
No Comments
Djöfull getur maður verið latur við að skrifa. Það nær engri átt. Anyway, fátt annað að gera en að redda því í hvelli með því að útlista hvernig síðustu dagar hafa liðið. Fór til Íslands með fjölskylduna í síðustu viku. Nokkra daga vinnuferð sem Erla og Guðjón Ingi ákváðu að nýta til að sækja fjölskylduna [...]
Posted by Jonathan Gerlach on November 8th, 2005 under Daglegt •
No Comments
Þá er helgin yfirstaðin. Var frekar tussuleg í þetta skiptið. Byrjaði helgina á því að liggja rúmliggjandi með magaverki eftir allt nammiátið á föstudagskvöldinu. Lág svo fyrir mest alla helgina með makakrampa og lystarleysi. Það var þó ánægjulegt að sjá Chelsea tapa sýnum fyrsta leik í deildinni og það á Old Trafford. Nú er bara [...]
Posted by Jonathan Gerlach on November 4th, 2005 under Daglegt •
No Comments
Hvar annarstaðar en í Danmörku er maður að labba úti á miðri götu og allt í einu flækist maður í köngulóavef? Þær eru bókstaflega allstaðar …