Nýr dagur - Nýtt útlit!
Jun 18 09

Gengi gjaldmiðla í dag

by Jonathan Gerlach

Ég gat bara ekki látið vera að setja inn mynd af gengi gjaldmiðla í dag. Þetta er auðvitað komið út fyrir öll velsæmismörk. Bandaríkjadalurinn! Sterlingspundið!!! Er þessi ríkisstjórn alveg að skíta upp á bak eða hvað? Í burtu með þessi gjaldeyrishöft, það getur vart orðið mikið verra en ástandið í dag …

Gengi gjaldmiðla 18. júní 2009

Gengi gjaldmiðla 18. júní 2009

May 18 09

10-11 í viðskiptabann!

by Jonathan Gerlach

Í þrjá mánuði núna hef ég haft verslanir 10-11 í persónulegu viðskiptabanni. Ég hvet alla til að gera slíkt hið sama, þvílíkt er okrið hjá þessari verslunarkeðju.

Ég starfa niðri í miðbæ og var það mjög hentugt að hoppa yfir í 10-11 í Austurstræti og versla eina skyrdollu. Þegar ég hinsvegar fór að gera smá verðsamanburð þá var mér svo brugðið að ég hef ekki ennþá stigið fæti þar inn.

Bónus opnaði þessa fínu verslun á Hallveigarstíg í vetur og mun ég beina viðskiptum mínum þangað í framtíðinni jafnvel þótt það taki mig auka 5 mínútur að labba þangað, tala nú ekki um þegar ástandið er eins og það er í dag.

Hér er smá verðkönnun (á hlutum sem ég versla nokkuð reglulega) sem ég gerði fyrir 2 vikum síðan og má glögglega sjá verðmismuninn í þessum tveim verslunum (auðvitað ekki hægt að bera saman lággjalda verslun og verslun eins og 10-11 en þegar mismunurinn er orðinn svona mikill þá spyr maður sig …).

Verðsamanburður á Bónus og 10-11

Verðsamanburður á Bónus og 10-11

May 10 09

32

by Jonathan Gerlach

Þá er enn einn afmælisdagurinn að baki og maður orðinn 32 ára. Ekkert merkilegur aldur til að halda uppá svosem en samt finnst mér alltaf gaman að eiga afmæli, tala nú ekki um þegar veðrið leikur við mann eins og það gerði í dag.

Konan færði mér morgunmat í rúmið eftir að hafa gefið mér fyrstu afmælilsgjöfina. Fékk þennan frábæra íþróttagalla og nýja inniskó frá 5 ára pjakknum á heimilinu. Ekki þótti honum leiðinlegt að hjálpa pápa sínum að opna pakkana.

Svo fékk ég að taka mér smá mið-morgun-lúr áður en við skelltum okkur í Kringluna og borðuðum hádegisverð með Hildi mömmu hennar Erlu og Jóhanni.

Svo var farið á röltið og Erla keypti sér gönguskó fyrir Laugarvegsgönguna miklu í júllí á 20% afslætti í Útilíf (það munar nú um minna í kreppunni!).

Næst fór ég á nokkra fyrirlestra/kynningar niðri í Hugmyndaráðuneyti um þróun leikja fyrir miðla eins og Facebook, iPhone osfrv. Nokkur frábær sprotafyrirtæki með markt skemmtilegt að tala um. Eftirá var svo bjór og spjall.

Einkasonurinn fór svo til ömmu sinnar í næturgistingu og við Erla komum við úti í búð til að kaupa það sem upp á vantaði fyrir afmæliskvöldverð dagsins eða ofnbakaðar kjúklingabringur í hráskingu og auðvitað ítalskt rauðvín til að skola þessu öllu niður …

Nú er bara að bíða eftir eftirréttnum … eplakaka í ofninum ala Erla eiginkona mín :)

P.S Yfir 50 afmæliskveðjur á Facebook. Er þetta nýja leiðin til að óska fólki til hamingju með daginn? :)

Apr 27 09

Kosningar og endurkoma mín í bloggið

by Jonathan Gerlach

Þá eru kosningarnar að baki. Sjálfstæðisflokkurinn féll niður í aðra deild eftir að hafa verið á toppi íslensku stjórnmáladeildarinnar í marga áratugi. Það er mín skoðun að öll félagslið (eða stjórnmálaflokkar í þessu tilfelli) hafi gott að falla niður um deild. Þau fá tilfinningu fyrir raunveruleikanum og tíma til að fara í smá naflaskoðun.

Ég er ekkert sérstaklega stolltur af því en ég merkti við D. Ekki afþví að Sjálfstæðisflokkurinn höfði lang mest til mín heldur afþví að ekkert af hinum flokkunum gera það.

Ef ég hefði kosið Samfylkinguna þá hefði ég þurft allan daginn í kjörklefanum til að strika yfir öll nöfnin sem ég vill ekki sjá í Íslenskum stjórnmálum, Steinunni Valdís (bankahrunið), Árna Pál (sem kallaði alla fífl) og Helga Hjörvar (þarfnast ekki skýringa). Listinn heldur áfram …

Með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn fannst mér ég taka illskársta kostinn, ég ætlaði amk. ekki að skila auðu!

Vinstri græna kýs ég aldrei enda höfða þessu sósíalisku lífsviðhorf ekki til mín. Svo er líka svo mikil synd að hafa Steingrím Joð ekki í stjórnarandstöðu því það er einfaldlega það besta sem hann gerir, að tuða yfir ríkisstjórninni.

Borgarahreyfingin hefði ég kannski kosið ef þeir hefðu ekki verið svona “allt út um allt” hreyfing. Ég meina fínt að fá alþýðuna inn á þing en þetta er fokkin vinna. Svona í alvöru, er einhver sem getur virkilega séð fyrir sér Þráinn Bertelsson fyrir sér í pontu að tala um álagningu á innfluttar kjötvörur? Halló, maðurinn leikstýrði Dalalíf og hefði átt að hætta þar, á toppnum …

Fráslyndir fengu það sem þeir áttu skilið, útrýmingu fyrir að vera flokkur með eitt baráttumál. Held að sjómenn hafi meira að segja ekki haft fyrir því að kjósa sinn eigin flokk, tja eða voru bara allir á kajanum?

Ástþór var auðvitað bara þarna til að gera grín að öllu saman og gaman að fá smá kjánahroll í hvert skipti sem hann fékk að hafa myndavélarnar á sér. Þetta video setti ég inn á youtube að gamni … að þessi maður skuli fá að koma í sjónvarp allra landsmanna er auðvitað stærsti brandari ársins.

Ég ætla heldur ekki að standa í að verja Sjálfstæðisflokkinn, þetta er minn flokkur og já, hann gerði í brækurnar. Það er þó mín skoðun að bankahrunið megi ekki skrifa á einn stjórnmálaflokk (þótt allir séu að reyna það). Sjálfstæðisflokkurinn fékk það tækifæri að semja frjálshyggju reglurnar í upphafi og hafa þær sennilega ekki verið nægilega nákvæmar því menn misnotuðu þær hægri vinstri og áður en yfir var staðið voru allir komnir með puttana í góðærið, bankamenn, fjárfestar, fasteignasalar, bílasalar og auðvitað þjóðin sjálf sem eyddi og eyddi eins og það væri engin morgundagur.

Annars hlakkar mig mikið til að sjá hvernig hið pólitíska landslag á eftir að þróast á næstunni. Þetta eru erfðir tímar og verður spennandi að sjá hvort SamGrænir nái að forða þjóðarskútunni frá öðru strandi.

Feb 25 09

Davíðsæði

by Jonathan Gerlach

Það er gaman að renna yfir Blogg Gáttina í dag og sjá hversu margir þurfa að tjá sig um Davíð í Kastljósinu í gær. Ef rennt er snögglega niður listann eru komnar 14 færslur í dag sem innihalda nafnið Davíð og í gær voru það 15 færslur (ég tel einungis þær færslur sem innihalda nafn Davíðs en ekki allar hinar færslurnar sem byrja á “Hræsnarinn í Seðlabankanum” eða “Litli seðlabankamaðurinn”).

Hvað er það við Davíð sem kveikir svona í fólki?

Jan 26 09

Tilnefningarnar til Íslensku vefverðlaunanna 2008

by Jonathan Gerlach

Þá er búið að gera tilnefningarnar kunnar og eru eftirfarandi vefir í úrslitum. Ég verð að segja að ég varð fyrir smá vonbrigðum að sjá aðeins einn vef frá mér á listanum ( Flugmálastjórn Íslands). En ætli maður verðir ekki að krossleggja fingur og vona það besta, enda ekkert smá vefir sem maður er að etja kappi við :)

Besti sölu- og þjónustuvefurinn
• Borgarleikhús ( www.borgarleikhus.is)
• Flugfélag Íslands ( www.flugfelag.is)
• Icelandair.is ( www.icelandair.is)
• Miði.is ( www.midi.is)
• Síminn ( www.siminn.is)

Besti fyrirtækjavefurinn
• Bláa lónið ( www.bluelagoon.com)
• Ísafold Travel ( www.isafoldtravel.is)
• Marel ( www.marel.com)
• Pósturinn ( www.postur.is)
• Síminn ( www.siminn.is)

Besti vefur í almannaþjónustu
• Akraneskaupstaður ( www.akranes.is)
• Fasteignaskrá Íslands ( www.fasteignaskra.is)
• Ísland.is ( www.island.is)
• Pósturinn ( www.postur.is)
• Veðurstofa Íslands ( www.vedur.is)

Besti afþreyingarvefurinn
• Kvikmyndir.is ( www.kvikmyndir.is)
• Iceland Socks ( www.myicelandsocks.is)
• Skjárinn ( www.skjarinn.is)
• Tónlist.is ( www.tonlist.is)
• Vísir ( www.visir.is)

Besta útlit og viðmót
• Flugmálastjórn Íslands ( www.caa.is)
• Icelandair ( www.icelandair.is)
• Ísafold Travel ( www.isafoldtravel.is)
• Pósturinn ( www.postur.is)
• Síminn ( www.siminn.is)

Besti einstaklingsvefurinn
• 24×24 ( www.24×24.is)
• Brjóstakrabbamein ( www.brjostakrabbamein.is)
• Cafe Sigrún ( www.cafesigrun.com)
• Hjartalíf ( www.hjartalif.is)
• Indefence ( www.indefence.is)

Jan 20 09

Myndir af mótmælunum

by Jonathan Gerlach

Þetta er svakalegt. Stemminging var góð og merkilega mikið af fólki mætt miðað við hádegi á þriðjudagi. Hér eru tvær myndir. Það sem mér þótti merkilegt var að það var stór hópur fólks kominn saman í bakgarðinum, að banka á bakdyrnar á Alþingishúsinu …

Jan 15 09

Kreppan er nú ekki meiri en það …

by Jonathan Gerlach

… en að vefur Iceland Express liggur á hliðinni 6 mínútum eftir að þeir auglýsa Ofurtilboð til Evrópu! Ég sem hélt að allir væru að spara :)

Jan 14 09

Eldur í Tryggvagötu

by Jonathan Gerlach

Það skemmtilega við að vinna niðri í miðbæ er að það er alltaf eitthvað að gerast. Þegar hlutirnir gerast er um að gera að munda iPhone-inn góða og taka mynd!

Jan 3 09

Ný vefsíða Keflavíkurflugvallar ohf.

by Jonathan Gerlach

Þá er ný vefsíða Keflavíkurflugvallar komin í loftið. Skapalónið mitt sá um að hanna vefinn fyrir þá núna í desember og var það DaCoda sem sá um að forrita í þetta skiptið (sorry Laddi minn :)).

Frétt um málið er hérhér og hér.